Sigfús Halldórsson 100 ára - AUKATÓNLEIKAR
Share on facebook
Share on twitter

salurinn

3. september
20:00
6.200 - 6.900 kr.

Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jogvan Hansen leika vinsælustu lög Sigfúsar Halldórssonar.

Við eigum samleið hópurinn, Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jogvan Hansen kynntu til sögunnar í haust tónleika þar sem þau ætluðu að flytja vinsælustu lög Sigfúsar Halldórssonar en þá hefði Sigfús orðið 100 ár.  Eins og landsmenn vita kom heimsfaraldur í veg fyrir tónleikahald en nú horfir til bjartari tíma og því ætla þau að blása til aukatónleikana þann 3. september vegna mikillar eftirspurnar

Undanfarin 6 ár hefur þetta  þríeyki haldið tónleika fyrir fullu húsi í Salnum í Kópavogi og víða um land.

Saman hafa þau sungið gömlu góðu dægurlagaperlurnar sem hljómuðu um land allt úr útvarpinu um miðja síðustu öld, lögin sem allir elska.

Á þessum tónleikum munu þau syngja mörg af vinsælustu lögum Sigfúsar. Eins og  Dagný, Tondeleyjó, Við eigum samleið, Lítill fugl og í grænum mó, en þessi lög hafa átt fastan sess á öllum tónleikum þeirra og núna bætast fleiri perlur við  úr lagasafni Sigfúsar.

Sigga, Guðrún og Jogvan eru meðal ástsælustu söngvara landsins og hafa af hjartans einlægni og áhuga flutt gömlu góðu dægurlögin í gegnum árin og hefur lífleg framkoma þeirra gert  tónleika þeirra einstaklega skemmtilega og vinsæla með eindæmum.

Nú gefst einstakt tækifæri á að heyra þau syngja vinsælustu lögin hans Fúsa með einvala liði hljóðfæraleikara í Salnum.

Hljóðfæraleikarar: Gunnar Gunnarsson píanó, Ásgeir Ásgeirsson gítar og Þorgrímur Jónsson kontrabassi.

Upphitun

Listafólk

Sigga Beinteins
Söngur
Guðrún Gunnars
Söngur
Jogvan Hansen
Færeyska

Bæta viðburði
í dagatal