Ofurhetjur jarðar
19. maí
— 23. ágúst. 2021
Share on facebook
Share on twitter
ÞYKJÓ

Fjölnotasal á fyrstu hæð aðalsafns Bókasafns Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs hefur verið umbreytt í töfraveröld þar sem börn geta komið og brugðið sér í gervi fjölskrúðugra dýra. Ofurhetjur jarðar er fyrsta búningalína ÞYKJÓ í þróun, innblásin af mögnuðum eiginleikum dýra úr ólíkum vistkerfum. Búningarnir eru hannaðir með það í huga að þeir passi börnum af ólíkum stærðum og gerðum.

Titillinn Ofurhetjur jarðar vísar til þess hvernig unnið er með ólík skynfæri manna og dýra í hverju húsi fyrir sig, sem tengist þó saman í eina lífræna heild. Verkefnið hverfist annars vegar um að fá börn til að sjá heiminn með augum annarra dýrategunda en hvetur þau líka til að staldra við og kynnast dýrinu í sjálfu sér. Efnin eru valin út frá því hvernig þau hreyfast í leik og örva þannig hreyfiþroska sem og hvernig þau eru viðkomu og virkja snertiskyn. Við gerð búninganna hefur verið hugað að endurvinnslu og nýtingu á afskorningum sem falla til við staðbundna textílframleiðslu. Búningarnir eru kynntir með búningaleikherbergi á aðalsafni og er börnum velkomið að klæða sig í þá og bregða á leik.

Sýningin opnaði á HönnunarMars 2021 sem er einn af hápunktunum í þessu umfangsmikla samstarfsverkefni.


 

ÞYKJÓ er þverfaglegt hönnunarverkefni fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sviði textíl-, leikfanga- og upplifunarhönnunar. Hönnuðirnir vinna náið með listafólki, vísindafólki og fræðifólki á borð við uppeldisfræðinga, líffræðinga, listfræðinga og síðast en ekki síst með börnum. ÞYKJÓ sérhæfir sig í búningum, innsetningum og listasmiðjum fyrir börn. Hönnunin miðar að þörfum barna og fjölskyldna og hvetur til gæðastunda.

Í vöruþróunar- og framleiðsluferli sínu leggja hönnuðirnir upp úr að nýta innlenda fagþekkingu og tækjabúnað úr fjölbreyttum iðngreinum; allt frá fléttun tága til neta- og burstagerðar. Allt þetta miðar að því að halda staðbundinni framleiðslu og heiðra sérhæfða verkþekkingu.

Hönnuðir ÞYKJÓ eru Sigríður Sunna Reynisdóttir, Ninna Þórarinsdóttir, Erla Ólafsdóttir og Sigurbjörg Stefánsdóttir og eru staðarlistamenn Menningarhúsanna í Kópavogi árið 2021. Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar styrkir listamannadvöl ÞYKJÓ í Menningarhúsunum.

Ljósmynd: Sigga Ella

Bæta viðburði
í dagatal