Aðalsafn
Græðlingar og gersemar
Yfirlitssýning á verkum sem börn í Kópavogi hafa skapað í listsmiðjum Sumarspíra 2021.

Uppskeruhátíð listasmiðja Sumarspíra Menningarhúsanna verður haldin á Hamraborgarfestival í fjölnotasal Bókasafns Kópavogs frá fimmtudegi 26. ágúst til laugardagsins 28. ágúst. Verkin sem sköpuð voru eru af ýmsum toga en gerðir voru skúlptúrar, teikningar, klippimyndaverk, hljóðfæri og fleira undir áhrifum sígildra norrænna ævintýra og barnabókmennta.

 

Sumarspírurnar í ár eru Anja Ísabella Lövenholdt, Ásthildur Ákadóttir, Bjartur Örn Bachmann, Hlökk Þrastardóttir. 

18. ágúst, 2021